Hagar hafa skrifað undir leigusamning um verslunarhúsnæði við Nýbýlaveg í Kópavogi. Fram kemur í uppgjörstilkynningu frá félaginu að stefnt er að opnun Bónusverslunar í desember næstkomandi.

Þá kemur fram að Hagar hafi gert tilboð í fasteign við Skútuvog 5 í Reykjavík. Stefnt er að því að stór hluti hússins muni nýtast Aðföngum. Ekki hefur verið gengið frá kaupsamningi þar sem enn eru nokkrir fyrirvarar í samningnum ófrágengnir.