Einn af stærri eigendum Bonusbanken í Danmörku, Sandgården, seldi í síðustu viku 2,5% af hlut sínum í bankanum og stefnir að því að selja meira, en Sandgården á nú 8,5% í Bonusbanken.

Kaupþing er einn af stærstu eigendum Bonusbanken með 13% en náin samvinna er með Bonusbanken Kaupþings í Lúxemborg, að því er kemur fram í frétt Børsen.

Bonusbanken er einn dýrasti banki Danmerkur, segir Børsen.