Sigríður Vilhjálmsdóttir, sem átti stóran hlut í Fiskveiðihlutafélaginu Venusi, borgar hæstu opinberu gjöldin. Samtals greiðir hún 425,5 milljónir í skatt vegna síðasta árs. Sigríður átti stóran hlut í Fiskveiðihlutafélaginu Venusi en seldi hann undir lok síðasta árs. Félagið, sem í dag er í eigu Kristjáns Loftssonar og Birnu Loftsdóttur, var stór hluthafi í HB Granda allt þar til í apríl þegar Guðmundur Kristjánsson í Brimi keypti þann hlut.
Útgerðarmenn eru fyrirferðarmiklir í listanum. Í efstu sætunum eru meðal annars Grundfirðingarnir Sigurður Sigurbergsson, Magnús Soffaníasson og Rúnar Sigtryggur Magnússon. Þeir voru hluthafar í Soffaníasi Cecilssyni hf., sem Fisk Seafood keypti í fyrra.
Listi ríkisskattstjóra yfir hæstu skattgreiðendur:
- Sigríður Vilhjálmsdóttir Reykjavík 425.502.876
- Sigurður Sigurbergsson Grundarfjarðarbær 388.245.493
- Magnús Soffaníasson Grundarfjarðarbær 387.180.911
- Rúnar Sigtryggur Magnússon Grundarfjarðarbær 382.526.842
- Hulda Guðborg Þórisdóttir Garðabær 328.980.716
- Kristján Loftsson Reykjavík 295.664.911
- Birna Loftsdóttir Hafnarfjörður 284.546.209
- Michael Wheeler Reykjavík 259.133.879
- Benoný Ólafsson Reykjavík 253.659.186
- Tom Gröndahl Reykjavík 231.883.635
- Steen Parsholt Reykjavík 231.883.635
- Benedikt Rúnar Steingrímsson Dalabyggð 231.816.547
- Magnús Jóhannsson Hafnarfjörður 228.677.671
- Jens Valgeir Óskarsson Grindarvíkurbær 194.971.414
- Friðþór Harðarson Sveitarfélagið Hornafjörður 162.970.623
- Rögnvaldur Guðmundsson Garðabær 161.817.074
- Einar Benediktsson Seltjarnarnes 151.094.812
- Vilhelm Róbert Wessman Reykjavík 142.455.851
- Kristján V Vilhelmsson Akureyri 140.664.593
- Sólveig Guðrún Pétursdóttir Reykjavík 137.225.344
- Richard Katz Reykjavík 135.582.626
- Kristján Már Gunnarsson Kópavogur 121.198.738
- Ingólfur Hauksson Reykjavík 105.228.949
- Grímur Karl Sæmundsen Reykjavík 104.972.342
- Þorsteinn Már Baldvinsson Akureyri 104.808.583
- Birgir Örn Guðmundsson Mosfellsbær 103.910.717
- Guðmundur Gylfi Guðmundsson Mosfellsbær 103.655.375
- Liv Bergþórsdóttir Garðabær 100.412.969
- Ársæll Hafsteinsson Flóahreppur 97.964.051
- Snorri Arnar Viðarsson Kópavogur 91.550.136
- Magnea Bergvinsdóttir Vestmannaeyjar 90.865.588
- Haraldur Bergvinsson Vestmannaeyjar 90.394.191
- Lúðvík Bergvinsson Reykjavík 90.329.578
- Lárus Kristinn Jónsson Reykjavík 89.808.909
- Bergvin Oddsson Vestmannaeyjar 89.592.489
- Ragnar Björgvinsson Reykjavík 87.687.820
- Örn Gunnlaugsson Kópavogur 85.214.906
- Hulda Vilmundardóttir Grundarfjarðarbær 84.767.981
- Tómas Már Sigurðsson Reykjavík 82.325.537
- Valur Ragnarsson Reykjavík 81.305.689
Tekjublað Frjálsrar verslunar kemur út í fyrramálið.