Borgar Þór Einarsson hæstaréttarlögmaður hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Guðlaugs Þórs Þórssonar utanríkisráðherra og hefur hann störf í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu.

„Borgar Þór hefur starfað sem lögmaður frá árinu 2004, nú síðast hjá CATO lögmenn þar sem hann hefur verið einn af eigendum frá 2014. Hann var eigandi á lögmannsstofunni OPUS á árunum 2010-2014 en þar áður starfaði hann sem lögfræðingur í Landsbankanum og á lögmannsstofunni LEX. Borgar Þór var aðstoðarmaður menntamálaráðherra á árunum 2003-2004 og hefur gegnt ýmsum félags- og trúnaðarstörfum í gegnum tíðina, m.a. stýrt starfshópi heilbrigðisráðherra um mótun stefnu til að draga úr skaðlegum afleiðingum og hliðarverkunum vímuefnaneyslu. Þá hefur hann um árabil gegnt embættum á vettvangi Lögmannafélags Íslands, bæði sem varaformaður og ritari. Borgar Þór var formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna 2005-2007,“ segir í tilkynningunni.