Kristín Soffía Jónsdóttir hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Icelandic Startups. Hún tekur við starfinu af Salóme Guðmundsdóttur sem lætur af störfum í júní. Greint er frá ráðningu Kristínar í fréttatilkynningu.

Kristín Soffía hefur verið borgarfulltrúi fyrir hönd Samfylkingarinnar í Reykjavík frá árinu 2014, stjórnarformaður Faxaflóahafna frá árinu 2014 og var varaborgarfulltrúi á árunum 2010-2014. Hún er með BS próf í umhverfisverkfræði.

„Icelandic Startups er í eigu Origo, Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Samtaka iðnaðarins og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Allir þessir aðilar leggja mikið af mörkum í að efla nýsköpun á Íslandi. Icelandic Startups veitir frumkvöðlum og sprotafyrirtækjum á Íslandi stuðning, en félagið stendur meðal annars að viðskiptahraðlinum Startup Supernova sem er stökkpallur fyrir sprotafyrirtæki. Þá skipuleggur Icelandic Startups nýsköpunarverkefnin Gulleggið, Til sjávar og sveita, Startup orkidea, Snjallræði, Hringiðu og Firestarter,“ segir um Icelandic Startups í fréttatilkynningu.

„Við erum ánægð og stolt að fá Kristínu Soffíu í lið með frábæru teymi starfsmanna Icelandic Startups. Framundan er vinna sem felst í því að skýra framtíðarsýn félagsins og hvernig það getur enn frekar stutt við frumkvöðla og sprotafyrirtæki og verið hvatning og leiðarljós í nýsköpun hér á landi. Um leið og við bjóðum Kristínu Soffíu velkomna kveðjum við Salóme Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Icelandic Startups til sjö ára, og þökkum henni fyrir ánægjulegt og árangursríkt samstarf og óskum henni velfarnaðar á nýjum vettvangi,“ er haft eftir Huld Magnúsdóttur, stjórnarformanni Icelandic Startups.

„Nýsköpun hefur sjaldan verið mikilvægari en í dag. Öflugt nýsköpunarstarf mun skapa störf, leysa þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í umhverfismálum og bæta lífsgæði hér á landi. Ég er þakklát fyrir að fá að leiða félagið á þessum spennandi tímum og hlakka til þess að leggja mitt af mörkum til að styðja enn frekar við nýsköpun hér á landi," segir Kristín Soffía í fréttatilkynningu.