Já og Borgarleikhúsið hafa skrifað undir samkomulag um að Borgarleikhúsið verði samstarfsaðili Símaskrárinnar 2012, sem mun koma út í maí á næsta ári. Í samningnum felst að Borgarleikhúsið mun ásamt Já koma að vinnu við myndskreytingar Símaskrárinnar og auk þess taka þátt í vinnu við  efnistök bókarinnar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Já, útgefanda Símaskrárinnar, en símaskráin er stærsta einstaka bókaútgáfa hvers árs og er notuð af stærstum hluta landsmanna samkvæmt tilkynningunni.

Já hefur áður nýtt sér krafta hæfileikaríkra, og jafnvel umdeildra, listamanna í tengslum við útgáfu bókarinnar, eins og Hugleiks Dagssonar og Egils Gillz Einarssonar. Nú vill Já beina sjónum að sviðslistum og hefur af því tilefni valið Borgarleikhúsið sem samstarfsaðila Símaskrárinnar 2012.

„Eitt meginmarkmið okkar í Borgarleikhúsinu er að eiga í virku samtali við samfélagið sem leikhúsið er sprottið úr,“ segir Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Borgarleikhússins.

„Símaskráin hefur í áranna rás oft verið spegill þjóðarinnar og því er okkur mikill heiður að vera valin sem samtarfsaðili Símaskrárinnar 2012. Það er líka ánægjulegt að ákveðið hafi verið að beina nú í fyrsta skipti athygli að sviðslistum en leikhúslíf þjóðarinnar er í miklum blóma þessi misserin.“

Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já, segir Símaskránna vera miðil sem spegli samfélagið á hverjum tíma, hún endurspegli ekki bara fólkið sem býr í landinu okkar, heldur líka menninguna og stemmninguna.

„Við viljum að Símaskráin sé lifandi bók, sem er skemmtileg, ásamt því að vera fróðleg. Við hlökkum mjög til samstarfsins með Borgarleikhúsinu og því frábæra fólki sem þar starfar,“ segir Sigríður Margrét.