Borgarráð hefur að tillögu borgarstjóra ákveðið að skipa fimm manna starfshóp til að ljúka gerð siðareglna fyrir kjörna fulltrúa Reykjavíkurborgar. Tillagan var samþykkt samhljóða á fundi borgarráðs í morgun.

Í tilkynningu frá borginni segir að samstaða hafi ríkt um mikilvægi siðareglna fyrir kjörna fulltrúa á vettvangi borgarstjórnar á kjörtímabilinu. Þá segir í tilkynningunni að fyrrgreindum starfshópi verði gert að skila niðurstöðu sinni eigi síðarn en 1. desember nk.