Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í dag bókun vegna umferðarmála við Kjalarnes. Ítrekar borgarráð mikilvægi þess að Vegagerð ríkisins hraði framkvæmdum við Vesturlandsveg til að auka umferðaröryggi á veginum.

Borgarráð tekur undir með íbúum á Kjalarnesi um að brýnt sé að fara í nauðsynlegar úrbætur á þessu svæði og mikilvægi þess að umferðaröryggismál verði betur tryggð fyrir akandi og gangandi vegfarendur við þessa fjölförnu umferðaræð.