Dagur B. Eggertsson borgarstjóri lýsir yfir stuðningi við Magnús Orra Schram í formannskjöri Samfylkingarinnar sem fer fram þessa dagana. Lýsir hann þessu yfir á facebook síðu sinni og tekur fram að hann telur hann besta kostinn í núverandi stöðu þó hann segi hina frambjóðendurna frambærilega.

Hafi þá kosti sem flokkurinn þurfi í dag

Segist hann hafa persónulega reynslu af krafti og eldmóði Magnúsar Orra, bæði þegar vel gengi og þegar móti blési, en síðast ekki síst þegar taka þurfi til hendinni.

Segir hann þessa og fleiri kosti Magnúsar Orra sem hann telur upp vera það sem Samfylkingin þurfi á að halda í dag. Flokkurinn mældist með 6,1% fylgi í síðustu könnun Fréttablaðsins, Vísis og Stöðvar 2 en ekki reyndist marktækur munur á fylgi flokksins og Framsóknarflokksins.