Ólafur Arnalds, Apparat og sjálfur borgarstjórinn eru meðal þeirra sem troða upp utan dagskrár á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves í kvöld. Annað kvöld verður svo hægt að sjá hina veraldarvönu hljómsveit Of Monsters and Men stíga á stokk ásamt þeim Ásgeiri Trausta og Valdimar á Marina Hótel auk ótal fleiri viðburða um allan bæ.

Sá hluti Airwaives sem kallaður er "off venue" er ókeypis og opinn öllum. Það ætti því varla neinn að vera svikinn af heimsókn á einn af þessum tónleikastöðum á meðan á hátíðinni stendur. Eins og kunnugt er seldust miðar á hátíðina upp í sumarlok og hefur aðsókn aldrei verið meiri. Stór hluti gesta kemur að erlendis frá og sátu margir eftir með sárt ennið þegar uppselt varð á hátíðina. Þétt hliðardagskrá ætti því að vera ágætis sárabót.