Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Einkaleyfastofu, hefur verið kosin í stjórn framkvæmdaráðs Evrópsku einkaleyfastofunnar.

Evrópska einkaleyfastofan er fjölþjóðleg stofnun sem sett var á fót með Evrópska einkaleyfasamningnum árið 1973 og eru aðildarríkin alls 38. Ísland hefur verið aðili að samningnum frá 1. nóvember 2004.

Stofnunin veitir evrópsk einkaleyfi, sem geta tekið gildi í öllum aðildarríkjum samningsins, auk þriggja annarra ríkja sem standa utan við hann. Höfuðstöðvar Evrópsku einkaleyfastofunnar eru í München og hefur stofnunin sjálfstætt framkvæmdavald og sjálfstæðan fjárhag.

Yfirstjórn EPO er í höndum framkvæmdaráðs, sem samanstendur af tveimur fulltrúum frá hverju samningsríki og hefur Borghildur átt sæti í ráðinu frá árinu 2010.

„Þátttaka í stjórn framkvæmdaráðsins veitir mikilvægt tækifæri til að hafa áhrif á þróun einkaleyfamála í Evrópu sem mun vafalaust nýtast Einkaleyfastofunni og hagsmunum Íslands í framtíðinni,“ segir Borghildur.