Katrín Júlíusdóttir fjármála- og efnahagsráðherra, og Dagur B. Eggertsson, staðgengill borgarstjóra, undirrituðu í dag samning um kaup Reykjavíkurborgar á landi ríkisins í Skerjafirði. Landið er alls 112.000 fermetrar að stærð.

Fram kemur í tilkynningu frá borgarstjórn að í samningnum segi m.a. að sameiginlegt markmið ríkis og Reykjavíkurborgar sé að koma svæðunum sem losna við lokun norður/suður  og austur/vestur flugbrautar Reykjavíkurflugvallar (stundum kölluð litla flugbrautin) í uppbyggingu. Bent er á að gert hafi verið ráð fyrir lokun litlu flugbrautarinnar með sameiginlegri viljayfirlýsingu ráðuneytisins og Reykjavíkurborgar frá árinu 1999. Þá er sömuleiðis vitnað til þess í tilkynningunni að í úttekt samgönguráðuneytis og Reykjavíkurborgar frá 2007 þar sem bornir voru saman ýmsir kostir í flugvallarmálinu, var í öllum tilvikum gert ráð fyrir að þessi þriðja braut flugvallarins í Vatnsmýri yrði lögð af.

Borgað í skömmtum

Í tilkynningunni segir m.a. að fjöldi íbúða og fyrirkomulag á svæðinu verði útfært í deiliskipulagi undir forystu umhverfis- og skipulagssviðs. Aðferðafræði við deiliskipulagið hafi ekki verið ákveðin en þó sé ljóst að horft verði til vinningstillögu um heildarskipulag Vatnsmýrarinnar. Vinna við skipulagið hefst fljótlega þótt ljóst sé að uppbygging fari ekki af stað fyrr en innanríkisráðuneytið hefur formlega tilkynnt um lokun flugbrautarinnar. Unnið er að samkomulagi við innanríkisráðuneytið og standa vonir til að frá því verði gengið innan tíðar.

Með samningnum skuldbindur Reykjavíkurborg sig til að selja allar lóðir á svæðinu á markaði.

Í tilkynningunni segir:

„Ríkinu er tryggt lágmarksverð í upphafi en skiptan hlut á móti Reykjavíkurborg eftir því sem hærra verð fæst fyrir landið. Áhættu borgarinnar er einnig haldið í lágmarki  með því að ekkert verður greitt fyrir landið fyrr en lokun flugbrautarinnar er orðin að veruleika. Þetta þýðir að ríkið fær meira fyrir sinn hlut eftir því sem nýting landsins eykst. Og sama á við um hlut Reykjavíkurborgar í sölu byggingarréttar. Fyrsta greiðsla Reykjavíkurborgar til ríkisins vegna samkomulagsins verða 440 milljónir króna en aðrar greiðslur munu taka mið af því sem fæst fyrir sölu byggingarréttar á svæðinu. Verðmæti byggingarréttar getur orðið á bilinu einn til þrír milljarðar. Nákvæmar tölur munu taka mið af endanlegu skipulagi og verði fyrir sölu byggingarréttar. Ætla má að hlutur ríkisins verði á annan milljarð króna og hlutur Reykjavíkurborgar litlu minni en gert er ráð fyrir tiltölulega þéttri byggð á svæðinu og að hátt verð fáist fyrir landið.“

© Aðsend mynd (AÐSEND)