Á fundi nú í morgun samþykkti borgarráð Reykjavíkurborgar umboð fjármálastjóra borgarinnar til að efna til útgáfu á nýjum skuldabréfaflokki borgarsjóðs í lokuðu útboði. Þetta kemur fram í tilkynningu .

Þar kemur fram að stefnt sé að því að selja úr honum skuldabréf fyrir allt að 1,7 milljarða króna náist ásættanleg ávöxtunarkrafa. Endanlegir skilmálar skuli hins vegar bornir undir borgarráð til samþykktar.