Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að fela borgarstjóra að ganga til viðræðna við eigendur Laugavegar 4 og 6 með það að markmiði að borgin kaupi húsin og láti gera þau upp.
"Markmið endurbyggingarinnar verður að viðhalda götumyndinni, en stækka jafnframt það rými sem nýtist í verslun eða aðra þjónustu. Endurbyggingin verði í góðri samvinnu við Minjavernd, borgarminjavörð og Húsafriðunarnefnd," segir í tilkynningu frá borgarstjórnarhópi Sjálfstæðisflokksins.
Þar kemur einnig fram að borgarráð leggi áherslu á að viðræðunum ljúki fyrir mánudag svo húsin verði ekki fjarlægð þegar skyndifriðun lýkur.