Borgun mun greiða 2,2 milljarða króna í arð til hlutahafa sinna á þessu ári. Þetta var samþykkt á aðalfundi fyrirtækisins í gær.
Með því mun eigendum Borgunar hafa verið greiddir þrír milljarðar í arð síðan Landsbankinn seldi 31,2 prósenta hlut í Borgun á 2,2 milljarða til hóps fjárfesta og stjórnenda Borgunar í nóvember 2014. Um málið er fjallað á visir.is í dag.

Samkvæmt fréttinni var hagnaður af reglulegri starfsemi Borgunar um 1,5 milljarður króna árið 2015 en auk þess var bókfærður hagnaður vegna fyrirhugaðra kaupa Visa Inter­national á Visa Europe á 5,4 milljarða.

Arðgreiðslur til hópsins sem keypti hlut Landsbankans í Borgun mun því nema 932 milljónum króna á tveimur árum.

Stærsti hluthafi í Borgun er Íslandsbanki sem á 63,4 prósenta hlut. Þá á Eignarhaldsfélagið Borgun slf. á 29,38 prósenta hlut og félagið BPS ehf., sem er í eigu starfsmanna Borgunar, á 5 prósenta hlut.