Fjármálaeftirlitið hefur gert athugasemdir við verklag og eftirlit vegna viðskipta við nokkra af viðskiptavinum Borgunar á erlendum mörkuðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Athugun FME snérist að því kanna hvort lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka væri fylgt.

„Í tengslum við það kannaði FME verklag félagsins við áreiðanleikakannanir á viðskiptamönnum, reglubundið eftirlit, tilkynningaskyldu og innra eftirlit. Niðurstaða athugunar FME liggur nú fyrir og gerði eftirlitið athugasemdir, aðallega í tengslum við umfang og nákvæmni áreiðanleikakannana, verklag og verkferla,“ segir í tilkynningunni.

„Borgun tekur athugasemdum FME alvarlega og mun tryggja í samstarfi við FME að starfsemin fullnægi betur en nú er ítrustu skilyrðum laga m.t.t. könnunar á áreiðanleika viðskiptamanna og skyldum þáttum, en lítið hefur reynt á túlkun þessara reglna, sem eru um ýmislegt matskenndar, í íslenskri stjórnsýslu- og réttarframkvæmd. Borgun hefur þess í stað reitt sig á reglur, túlkun og úttektir kortafélaganna Visa og MasterCard sem byggja á sömu evrópulögum og hér um ræðir. Það er brýnt að taka fram að hvorki er um að ræða grun um peningaþvætti né fjármögnun hryðjuverka. Borgun hefur þegar hafist handa við að uppfylla fyrirmæli FME, meðal annars með því að segja upp viðskiptasambandi við nokkra aðila,” segir Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar.

Borgun stefnir að því að að allri vinnu af hálfu Borgunar til að upfylla kröfur FME um úrbætur verði lokið innan tveggja mánaða.