Börn í 6. og 7. bekk fá afhendar forritanlegar smátölvur hannaðar af BBC frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Samtökum iðnaðarins, Menntamálastofnun og RÚv til að vekja áhuga barnanna á forritun. Þetta segir í fréttatilkynningu.

„Verkefnið felst í því að Microbit, forritanleg smátölva, verður gefin öllum grunnskólabörnum í 6. og 7. bekk. Samhliða því verða kynnt fjölþætt verkefni, fræðsluefni og leiðir sem nemendur, kennarar og foreldrar geta nýtt sér til að kynnast heimi forritunar m.a. með notkun Microbit tölvunnar. Forritunarvinna reynir ekki aðeins á rökhugsun heldur einnig hugmyndaauðgi, skapandi hugsun og lausnamiðaða nálgun. Á næstu vikum verða í kringum 9000 Microbit smátölvur afhentar.

Microbit er forritanleg tölva sem er hönnuð af BBC og fjölda samstarfsaðila til að vekja áhuga barna á forritun og kenna þeim forritun. Microbit er einskonar byrjendaútgáfa af Raspberry Pi eða Arduino tölvunum en verkefnið var upphaflega sett í gang í Bretlandi þar sem mikill skortur er á kennurum sem geta kennt forritun og því vantar að fleiri nemendur skili sér inn í heim tækni og forritunar“ kemur fram í tilkynningunni.

Haft er eftir Illuga Gunnarssyni, mennta- og menningarmálaráðherra í tilkynningunni að veröldin sem við þekkjum í dag er að mörgu leyti allt önnur en sú sem mörg okkar ólumst upp í — og að það skapi sérstakar áskoranir fyrir menntakerfin. Því taki atvinnulífið og hið opinbera saman höndum saman í því að reyna að skapa ungu fólki þau lífsskilyrði sem að þau eiga skilið.