Jennifer Lopez
Jennifer Lopez
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Nýjustu viðfangsefni hátískuframleiðenda á borð við Versace, Fendi og Gucci eru smábörn en þessir fataframleiðendur hafa sent frá sér vörulínur fyrir börn. Stjórnendur fyrirtækjanna binda miklar vonir við barnaföt sem viðbót við núverandi vörulínur og í samtali við Wall Street Journal gerir forstjóri Versace ráð fyrir að innan fimm ára skili barnalínan um 10% af sölu fyrirtækisins á alþjóðavísu. Föt og aukahlutir í nýrri barnalínu frá Gucci fyrir tveggja til átta ára börn kosta allt frá 50 til 3.550 Bandaríkjadala eða sem nemur rúmlega 400 þúsund krónum.