Þær Tinna Ólafsdóttir og Helga Ólafsdóttir opna í dag barnafataverslunina Ígló í Kringlunni. Fyrirtækið var stofnað árið 2008 en það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan því nú er hægt að kaupa Ígló fatnað í 11 verslunum hér á landi og í sjö öðrum löndum.