Böðvar Þórisson, framkvæmdastjóri Alþjóðasölu og Markaðssviðs Medcare, hefur ákveðið að segja starfi sínu lausu til að takast á við ný verkefni. Böðvar hefur gengt lykilhlutverki til uppbyggingar sölu- og dreifikerfi Medcare undanfarin 7 ár.

"Hans verður saknað," segir David Baker, forstjóri Medcare í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar. Böðvar bætti við í sömu tilkynningu: "Medcare er mjög sterkt vörumerki og ér er viss um að það teymi sem þar er muni ná frábærum árangri." Böðvar mun starfa hjá Medcare fram til 9. nóvember, 2005.