Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar um vöruskipti við útlönd fyrir október 2009 nam útflutningur tæpum 47 milljörðum króna og innflutningur 30,6 milljörðum króna.

Vöruskiptin í október voru því hagstæð um 16,4 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum.

Á vef Hagstofunnar kemur fram að vísbendingar eru um meira verðmæti útfluttra iðnaðarvara og minna verðmæti innflutts eldsneytis og hrá- og rekstrarvara í október 2009 miðað við september 2009.