Bragi Guðbrandsson var í dag kjörinn í nefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins til næstu fjögurra ára. Atkvæðagreiðslan fór fram á fundi aðildarríkja Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem haldinn var í New York í dag. Bragi fékk mjög góða kosningu, 155 atkvæði af 195. Átján frambjóðendur sóttust eftir níu sætum í nefndinni. Bragi, ásamt fulltrúa Samóa, fékk næstflest atkvæði allra en fulltrúi Marokkó hlaut 160 atkvæði.
„Réttindi barna eru eitt af þeim málefnum sem Ísland talar reglulega fyrir á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og í þessari niðurstöðu felst því mikil viðurkenning á frammistöðu Íslands á þessu sviði,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra. „Bragi Guðbrandsson er sömuleiðis vel að þessu kominn enda hefur hann menntun, sérþekkingu og áratuga reynslu, bæði á Íslandi og í alþjóðastarfi, í þeim málaflokki sem barnaréttarnefndin fæst við.“
Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra fagnar úrslitum atkvæðagreiðslunnar. „Ég er ánægður með þessa niðurstöðu. Ísland hefur nú fengið rödd á þessum mikilvæga vettvangi þar sem talað er fyrir réttindum barna og bættri stöðu þeirra á grundvelli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Áratuga reynsla og þekking Braga Guðbrandssonar á málefnum barna og þátttaka hans í alþjóðlegu samstarfi á þessu sviði mun án efa nýtast vel í störfum barnaréttarnefndarinnar.“