Brasilíubúar eru eftirsóttustu ferðamennirnir í New York enda eyða þeir mest allra þar í borg. Um 700 þúsund Brasilíubúar hafa heimsótt New York í ár sem er tvisvar sinnum fleiri en árið 2009. Í fyrra eyddu Brasilíumenn 1,63 milljörðum Bandaríkjadala eða tæplega 20 þúsund milljörðum í New York.

Fjöldi ferðalanga frá Brasilíu sýnir glögglega vöxtinn í landinu sem hefur breyst úr fátæku land í það að vera sjöunda stærsti ríki heims ef miðað er við þjóðarframleiðslu. Samkvæmt viðmælendum Wall Street Journal eru miklar væntingar til þess að brasilískum ferðamönnum fjölgi enn frekar á komandi árum.