Súrdeigsbakaríið Brauð & co mun opna bakarí í húsnæði Gló í Fákafeni. Ágúst Einþórsson, bakari og stofnandi Brauð & Co segir í samtali við ViðskiptaMoggann að þeir muni einnig opna bakarí í nýju Mathöllinni á Hlemmi.

Ágúst segir í viðtalinu að það hafi legið vel við að opna í húsnæði Gló en eignartengsl séu á milli Gló og Brauð & Co.