Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkað um 1,09% í 130 milljóna króna viðskiptum í dag og endaði í 963,94 stigum. Hefur vísitalan hækkað um 5,97% það sem af er ári.

Gengi bréfa Atlantic Petroleum hækkaði um 2,76%, Marels um 1,82% og Icelandair um 0,74%. Hins vegar lækkaði gengi bréfa Nýherja um 1,82%. Mest viðskipti voru með bréf Haga, eða fyrir 74,6 milljónir og hækkaði gengi bréfanna um 0,30% í dag.