Gengi hlutabréfa Eimskips hækkaði um 1,32% í Kauphöllinni í dag í ríflega 113 milljóna króna viðskiptum. Gengi hlutabréfa félagsins endað í 269,50 kr. á hlut. Á sama tíma hækkaði gengi hlutabréfa TM um 0,37% í tæplega 4,6 milljóna króna viðskiptum.

Á hinn bóginn lækkaði gengi bréfa Haga um 0,97% en gengi Haga hækkaði um 2,14% í viðskiptum gærdagsins og hafði gengi bréfa félagsins þá aldrei verið hærra í lok dags eða í 31 kr. á hlut. Við dagslok í dag endaði gengið í 30,7 kr. á hlut. Þá lækkað gengi bréfa VÍS um 0,29% og Icelandair um 0,08%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,1% og endaði hún í 1.130,36 stigum. Heildarvelta með hlutabréf nam 150 milljónum króna.