Gengi hlutabréfa Eimskip hækkaði um 5% fyrstu vikuna sem eftir skráningu á hlutabréfamarkað. Miðað er við útboðsgengi bréfa félagsins, 208 krónur á hlut. Hlutabréfin voru skráð á markað föstudaginn 16. nóvember síðastliðinn og miðast útreikningurinn við gengi hlutabréfa Eimskips við lokun markaðar á föstudag í síðustu viku.

Til samanburðar hækkaði gengi hlutabréfa Haga um 29,6% fyrstu vikuna á hlutabréfamarkaði. Þau voru skráð á markað um miðjan desember í fyrra. Þá hækkaði gengi hlutabréfa fasteignafélagsins Regins um 4,75% fyrstu vikuna eftir skráningu í upphafi júlí í sumar.