Bréf FL Group hækkuðu um 3,9% í Kauphöllinni í dag og endaði gengi þeirra í 15.80. Hækkunin kemur í kjölfar þess að Yfirtökunefnd Kauphallarinnar skoðar hugsanlega yfirtökuskyldu en sérfræðingar greiningardeildar KB banka leiddu að því líkur í gær að yfirtökugengið gæti orðið í kringum 16.