Gengi hlutabréfa smásölurisans Haga hækkaði um 1,51% í Kauphöllinni í dag. Þetta var mesta hækkun dagsins. Ekki var þó mikil velta á bak við viðskiptin eða 81 milljón króna. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa fasteignafélagsins Regins um 0,65%, Eimskips um 0,19% og VÍS um 0,10%.

Á hinn bóginn lækkaði gengi bréfa Vodafone um 1,1%, Össurar um 0,30% og Icelandair Group um 0,23%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,19% og endaði hún í 1.126 stigum við lok dags. Heildarvelta á hlutabréfamarkaði nam 694 milljónum króna.