Gengi hlutabréfa Hampiðjunnar hefur lækkað um 9,41% það sem af er degi í Kauphöllinni. Ekki er mikil velta á bak við gengisþróunina eða þrjár milljónir króna. Gengið stendur í 11,55 krónum á hlut og er það á svipuðum slóðum og í byrjun mánaðar.

Gengi hlutabréfa Hampiðjunnar hafði hækkað nokkuð upp á síðkastið, farið úr 10 krónum á hlut í júní og stóð í 12,75 krónum á hlut í gær. Það jafngildir 27,5% hækkun síðan þá. Til samanburðar stóð gengi hlutabréfa Hampiðjunnar í 9,4 krónum á hlut um síðustu áramót og hefur það hækkað um 22,87% síðan þá.