Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,09% í viðskiptum dagsins og endaði í 1.751,80 stigum. Velta með hlutabréf nam ríflega 3,4 milljörðum króna en viðskipti með skuldabréf námu um 2,4 milljörðum. Samtals nam veltan rétt tæplega 5,9 milljörðum króna.

Á hlutabréfamarkaði voru mest viðskipti með bréf í Icelandair Group eða 702 milljóna viðskipti. Gengi bréfanna hækkaði um 0,79% í þessum viðskiptum. Mesta hækkunin var á bréfum Tryggingamiðstöðvarinnar en þau hækkuðu um 1,86% í 333 milljóna króna viðskiptum.

Reitir fasteignafélag hækkaði um 1,19% í 511 milljóna króna viðskiptum. HB Grandi lækkaði mest í dag eða um 1,5% í 131 milljóna viðskiptum. Hagar lækkuðu um 0,81% í 277 milljóna króna viðskiptum.

Á skuldabréfamarkaði nam veltan 2,4 milljörðum þar af var veltan með óverðtryggð bréf tæplega 1,7 milljarður. Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í dag í 1,5 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,2% og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega.