Gengi hlutabreéfa Icelandair Group hækkaði um 0,87% í 63 milljóna króna veltu í Kauphöllinni í dag. Þetta var mesta gengishækkunin á hlutabréfamarkaði. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Haga um 0,82%, fasteignafélagsins Regins um 0,63% og Eimskips um 0,43%.

Á hinn bóginn lækkaði gengi bréfa Vodafone um 0,77%, Marel um 0,48% og Sjóvár um 0,25%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,31% og endaði hún í 1.122 stigum. Heildarvelta með hlutabréfa í Kauphöllinni nam 181,6 milljónum króna. Mesta veltan var með hlutabréf Haga eða upp á rúmar 66 milljónir króna.