Gengi hlutabréfa Marel lækkaði um 0,77% í 60 milljóna króna veltu í Kauphöllinni í dag. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar um 0,55% og bréf Haga-samstæðunnar um 0,24%.

Þá hækkaði gengi hlutabréfa Icelandair Group um 0,68% og fasteignafélagsins Regins um 0,49%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,38% og endaði hún í 968,83 stigum.