Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 1,91% í viðskiptum dagsins í dag og endaði í 978,05 stigum. Gengi bréfa Marels hækkaði um 2,77% og Össurar um 2,23%. Þá hækkuðu bréf Haga um 1,94 og Regins um 0,97%. Engin hlutabréf lækkuðu í verði í dag.

Velta á hlutabréfamarkaði nam 167,7 milljónum króna og þar af nam velta í viðskiptum með bréf Marels um 101,8 milljónum króna.