Bréf Novators í finnska íþróttavöruframleiðandanum Amer Sports hefur lækkað um nálega helming frá því þau voru keypt fyrir rúmu ári. Markaðsvirði félagsins er núna nálægt einum og hálfum milljarði evra.

Novator á í kringum 20% hlut og var hann keyptur á meðalverðinu 12,7 evrur á hlut að því er segir í Helsinki sanomat í dag. Í dag er félagið að seljast á í kringum 5,5 á hlut.