Gengi bréfa Össurar hækkaði mest í Kauphöllinni í dag. Nam hækkunin 1,24% en velta með bréfin var nánast engin. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Icelandair um 0,85%, HB Granda um 0,83%, N1 um 0,54% og Vodafone um 0,46%. Velta með hlutabréf Icelandair var mikil og nam 1.071 milljónum króna.

Þá lækkaði gengi bréfa Haga um 0,88% og Marels um 0,81%.

Úrvalsvísitalan hækkað um 0,04% og stendur í 1.144 stigum. Heildarvelta með hlutabréf nam 1.372 milljónum króna.