Gengi hlutabréfa VÍS hækkaði um 1,34% í Kauphöllinni í dag í mjög lítilli veltu. Var það mesta gengishækkun dagsins. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Marels um 0,81%, N1 um 0,8%, Vodafone um 0,46% og Haga um 0,11%.

Þá lækkaði gengi hlutabréfa Icelandair  um 1,7% í Kauphöllinni í dag í 306 milljóna króna veltu. Hlutabréf HB Granda lækkuðu um 0,48% og Össurar um 0,31%.

Gengi úrvalsvísitölunnar lækkaði um 0,29% og endaði hún í 1.140 stigum. Heildarvelta með hlutabréf nam 728 milljónum króna.