Gengi hlutabréfa VÍS féll um 2% í Kauphöllinni í dag. Á bak við gengisþróunina var velta upp á 147 milljónir króna. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 1,69%, N1 um 1,19% og Sjóvár um 0,92%. Þá lækkaði gengi bréfa Marel um 0,46% og Eimskips um 0,11%.

Á sama tíma hækkaði gengi bréfa HB Granda um 0,54%, Haga um 0,4% og TM um 0,1%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,63% og endaði hún í 1.154 stigum. Heildarvelta með hlutabréf í Kauphöllinni nam 552 milljónum króna.