Gengi hlutabréfa Vodafone hefur hækkað um 4,67% í Kauphöllinni. Talsverð velta hefur verið með hlutabréfin en hún nemur það sem af er degi 171 milljón króna. Gengi hlutabréfa Vodafone stendur nú í 28 krónum á hlut.

Gengi bréfa Vodafone hrundi um 12% í 211 milljóna króna veltu fyrir viku í kjölfar þess að tölvuþrjótur braust inn í tölvukerfi fyrirtækisins og stal ódulkóðuðum gögnum. Gengi hlutabréfa Vodafone stóð í 29,75 krónum á hlut á föstudeginum áður en innbrotið átti sér stað. Þegar viðskiptadagurinn var á endan á mánudeginu var gengið komið niður í 26,15 krónur á hlut.

Miðað við gengi hlutabréfa Vodafone nú hefur það hækkað um 7% frá á mánudag í síðustu viku.