Breki Logason hefur tekið við sem forstöðumaður Samskipta- og samfélagssviðs hjá Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Breki hefur starfað sem sérfræðingur í samskiptamálum á sviðinu undanfarið ár en hlutverk þess er að sjá um samskipta- og markaðsmál hjá OR og dótturfyrirtækjunum Veitum, Orku náttúrunnar, Ljósleiðaranum og Carbfix. Þetta kemur fram í tilkynningu. Breki tekur við starfinu af Bryndisi Ísfold Hlöðversdóttur, sem sagði upp störfum í vor.

Breki er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og starfaði lengi við fjölmiðla, sem blaða- og fréttamaður auk þess sem hann var Fréttastjóri Stöðvar 2. Þá hefur hann einnig starfað í auglýsingageiranum, sem ráðgjafi í heilbrigðisráðuneytinu og sem framkvæmdarstjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Your Day Tours sem hann stofnaði ásamt bræðrum sínum árið 2015.

„Ég er mjög ánægður og stoltur að fá tækifæri til að leiða þetta mikilvæga svið hjá OR og dótturfyrirtækjum þess. Verkefnin hjá samstæðunni eru bæði fjölbreytt og samfélagslega mikilvæg en þau snerta líf íbúa á mörgum ólíkum sviðum. Okkar verkefni er að eiga gott samtal við almenning," er haft eftir Breka í tilkynningunni.