Síðustu daga hafa hægar austlægar áttir verið ríkjandi á höfuðborgarsvæðinu en því hefur fylgt viðvarandi lykt af brennisteinsvetni (H2S).

Mánudagurinn 2. febrúar var metdagur á loftgæðamælistöðvunum við Grensásveg í Reykjavík og Álalind í Kópavogi.

Þetta kemur fram á vef Umhverfisstofnunar en við Álalind mældist sólahringsmeðaltal brennisteinsvetnis jafn hátt og heilsuverndarviðmið WHO (Alþjóða heilbrigðismálastofnunin) eða 150µg/m3.

Á vef stofnunarinnar kemur fram að sólahringsmeðaltal brennisteinsvetnis hefur aldrei fyrr mælst við þessi mörk í byggð á höfuðborgarsvæðinu.

Tekið er fram að ekki þarf að óttast bráðaáhrif af þessum styrk „en þó skal hér tilgreint að langtímaáhrif brennisteinsvetnis í lágum styrk á heilsu fólks eru ekki vel rannsökuð,“ segir á vef stofnunarinnar.

Þá kemur fram að þegar brennisteinsvetni mælist í þessum styrk er mögulegt að fólk sem býr nær upptökum mengunarinnar og er viðkvæmt fyrir brennisteinsvetni geti fundið fyrir höfuðverk og ógleði. Nær virkjunarsvæðinu má búast við meiri styrk sem þá getur haft áhrif á heilsu manna.

Sjá nánar á vef Umhverfisstofnunar.