Íslensk stjórnvöld hafa óskað eftir viðræðum við bresk yfirvöld um samráð ríkisstjórna landanna vegna ástandsins á fjármálamörkuðum, áhrif þess á íslenskt fjármálakerfi og stöðu íslenskra banka.

Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu kemur fram að sendiherra Íslands í Bretlandi, Sverrir Haukur Gunnlaugsson hafi farið eftir hádegi í dag til fundar í Downingstræti 10 við háttsetta embættismenn í forsætisráðuneyti og fjármálaráðuneyti Bretlands.

Á fundinum sem íslensk stjórnvöld óskuðu eftir í framhaldi af yfirlýsingum Gordons Brown, forsætisráðherra, og Alistair Darling, fjármálaráðherra í morgun, kynnti sendiherrann efni yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um Icesave-reikninga Landsbankans og fyrir liggur nú að teknar verða upp formlegar viðræður ríkjanna um áframhaldandi samráð og nauðsynlegar aðgerðir.