Breska varnarmálaráðuneytið hefur sent herflugvél með eina milljón evra í reiðufé til að geta veitt breskum hermönnum á Kýpur og fjölskyldum þeirra lán fari svo að hraðbankar og debetkort hætti að virka. Mun flugvélin lenda á Kýpur um klukkan átta í kvöld að íslenskum tíma.
BBC hefur eftir talsmanni varnarmálaráðuneytisins að staðan yrði metin og ákveðið hvort grípa þyrfti til annarra ráða til að tryggja hermönnunum nægilegt fé. Meðal þess sem til greina kemur er að laun þeirra verði greidd inn á reikninga í breskum bönkum í stað banka á Kýpur svo að innstæðurnar verði ekki skattlagðar, eins og til stendur að gera.
Eins og fram hefur komið áður er skattlagning á innstæður í kýpverskum bönkum hluti af björgunaráætlun Evrópusambandsins. Áætlunin er hins vegar gríðarlega óvinsæl á Kýpur og er talið ólíklegt að þingið leggi blessun sína yfir hana í atkvæðagreiðslu í kvöld.