Rúmlega 10 þúsund Bretar hafa nú gefið sig fram við þarlend stjórnvöld og upplýst um innstæður sem þeir eiga í svokölluðum skattaskjólum.
Frá þessu er greint á vef BBC en Bretar höfðu fram á mánudag til að gefa sig fram við stjórnvöld og upplýsa um fjármagn sem geymt væri í skattaskjólunum og ekki gefið upp til skatts.
Með þessu eru yfirvöld að gefa fjármagnseigendum tækifæri til að gefa sig fram áður en farið verður að rannsaka ítarlega hvort, og þá hversu mikið, fjármagnseigendur eiga mikið af fjármagni utan Bretlands og hafa ekki greitt af því skatt. Ef upp kemst síðar að svo sé mega viðkomandi aðilar eiga von á miklum sektum eða annars konar aðgerðum af hálfu yfirvalda.
Þeir sem hins vegar gefa sig fram þurfa engu að síður að greiða sinn skatt. Eitthvað verður hægt að semja um yfirvöld hvernig og hvenær greiðslur fara fram en breska fjármálaeftirlitið, sem telur sig geta aflað um 500 milljóna Sterlingspuna á stuttum tíma með þessum aðgerðum, hefur þó ítrekað lýst því yfir að þó að menn gefi sig fram nú hafi þeir engu að síður falið fjármagnið hingað til og munu því aðeins losna við refsingar en ekki greiðslur.
Það er ekki ólöglegt að geyma fjármagn erlendis en þeir sem gefa innstæður sínar ekki upp og fá greidda vexti af þeim þurfa að greiða skatt af vöxtunum.