Sjónvarpskokkurinn Ainsley Harriott er staddur í Reykjavík til þess að taka upp efni fyrir nýjan ferða- og matarþátt sem nefnist Ainsley Eats the Streets, og sýndur verður á Channel 4 í Bretlandi nú í vor. Ainsley mun jafnframt taka upp efni fyrir nýjan þátt og verða gestadómari á Food&Fun-keppninni sem fram fer næsta laugardag í tengslum við hátíðina.

Fram kemur í tilkynningu að Ainsley Eats the Street eru nýjir þættir þar sem Ainsley Harriott ferðast um heiminn og kynnist matarmenningu ólíkra borga. Hann heimsækir litla götu veitingastaði, kynnir sér matarvenjur heimamanna og upplifir menningu borgarinnar á meðan á heimsókninni stendur. Í lok hvers þáttar freistar hann þess að nýta sér það sem hann hefur lært til að elda dæmigerðan mat fyrir borgina sem hann hefur heimsótt.

Ainsley Harriott er þekktur sjónvarpskokkur í Bretlandi, en þættir hans Ready Steady Cook og Can’t Cook, Won’t Cook hafa notið mikilla vinsælda. Það er íslandsstofa sem stendur fyrir koma Ainsley Harriott hingað til lands í tengslum við Food&Fun hátíðina.