Á mánudaginn setti Vodafone í Bretlandi nýja þjónustu í loftið sem gerir Facebook-notendum þar í landi kleift að senda SMS-skilaboð frá síðu sinni til vina sinna.

Síðar í mánuðinum verður hægt að senda myndir með skilaboðunum.

Það er Marketing Week (marketingweek. co.uk) sem greinir svo frá á vef sínum.

Kostnaður við sent skeyti verður um 16 krónur en Vodafone mun gefa 25 skeyti til að koma notendum af stað.

Pieter Knock, yfirmaður netmála hjá Vodafone Group, segir Bretland tilvalinn prufumarkað fyrir þjónustuna enda séu þar í landi um 20 milljónir notenda að samfélagssíðum á borð við Facebook.