Breski bílaframleiðandinn Jaguar Land Rover gæti hætt við 80 milljarða punda fjárfestingu í Bretlandi ef að samningurinn um útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu reynist fyrirtækinu óhagstæður. Þetta kemur í frétt BBC . Að sögn forstjóra fyrirtækisins er „hjarta og sál“ þess í Bretlandi. Hins vegar gæti slæmur samningur dregið hagnað félagsins saman um allt að 1,2 milljörðum punda á ári.

Tímasetning orða forstjórans Ralf Speth er engin tilviljun. Ríkisstjórn Bretlands tilgreindi fyrr í dag að hluti til hvernig tollum og vörugjöldum yrði háttað eftir að landið gengur úr ESB. „Við höfum varið um 50 milljörðum punda í fjárfestingar á síðustu fimm árum og áætlum að verja um 80 til viðbótar á næstu fimm árum. Þær áætlanir verða hins vegar settar úr skorðum komi til þess að útkoma samningsins verði slæm,“ sagði Speth.

Þrátt fyrir að Jaguar Land Rover sé í eigu indverska fyrirtækisins Tata Motors er stærstur hluti starfsemi þess í Bretlandi. Um 40.000 starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu auk þess sem 260.000 til viðbótar starfa í framleiðslukeðju þess.

Fyrirtækið er ekki það eina til þess að lýsa yfir óvissu um frekari fjárfestingar í Bretlandi vegna Brexit. Bílaframleiðendurnir BMW og Nissan auk flugvélaframleiðandans Airbus hafa öll greint frá því að því að allar frekari fjárfestingar í Bretlandi séu til endurskoðunar og að hætt verði við þær ef landið yfirgefur ESB án þess að tryggja að óbreytt viðskiptaumhverfi.