Standard & Poor’s hafa breytt horfum í mati á fjárhagslegum styrkleika Tryggingamiðstöðvarinnar úr neikvæðum í stöðugar.

Það er gert í kjölfar þess að horfum á mati á Ríkissjóði Íslands var breytt með sama hætti, þann 24. janúar síðastliðinn. Fjárhagsleg styrkleikaeinkunn TM BBB-, er jafnframt staðfest en það er sama einkunn og S&P’s hafa veitt langtímaskuldbindingum íslenska ríkisins.

TM hefur frá árinu 2007 verið með styrkleikamat frá S&P’s, eitt íslenskra tryggingafélaga.  Matið gefur TM tækifæri á að sækja vátryggingaviðskipti á erlenda markaði og er því mikilvægur liður í vaxtarmöguleikum félagsins.

Meðfylgjandi er fréttatilkynning S&P’s um TM frá 28. janúar 2014.