Stjórn Teymis hf. hefur borist tilkynning frá Soffíu Lárusdóttur, varamanni í stjórn félagsins, þess efnis að hún segi sig úr varastjórn félagsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu Teymis til Kauphallarinnar.

Þá kemur jafnframt fram að með vísan í lög um hlutafélög telur stjórn félagsins ekki ástæðu til að fram fari kosning varamanns í hennar stað og hefur því ákveðið að fresta kjöri til næsta aðalfundar.