Í kjölfar þess að Benedikt Gíslason var ráðinn framkvæmdastjóri Markaðsviðskipta, Eigin viðskipta og Fjárfestingasviðs Straums-Burðaráss fjárfestingabanka, og tók jafnframt sæti í framkvæmdastjórn bankans, hafa verið gerðar breytingar á framkvæmdastjórninni sem felast í því að Fredrik Sjöstrand og Flemming Bendsen eiga frá og með deginum í dag ekki lengur sæti í framkvæmdastjórn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Straum.